Hér má sjá yfirlit yfir æfingagjöld og vörur sem eru í boði hjá Aikikai Reykjavík. Gildir frá 10. ágúst 2023.

Nýir iðkendur geta komið í tvo fría prufutíma en eftir það greiðast æfingagjöld eftir verðskrá. Þegar þú vilt halda áfram skaltu skrá þig í félagið hérna.

10% afsláttur er veittur til fjölskyldumeðlima og para. Hægt er að nýta frístundastyrk fyrir iðkendur á aldrinum 6 – 18 ára.

Greiða má inn á reikning félagsins 0526-26-6401, kt. 640196-2549.

Verð þessi geta breyst án fyrirvara.

Fullorðnir

Iðkendur sem hafa náð 16 ára aldri greiða fullorðinsgjald. Byrjendur sem mæta í sérstakt námskeið fá afslátt af mánaðargjaldinu. Iðkendur sem gera samkomulag fyrir heilt ár geta greitt æfingagjaldið í jöfnum mánaðarlegum greiðslum.

ByrjendanámskeiðAuglýst sérstaklega
Mánuður 1 mán.12.000 kr.
Sumarið 3 mán.25.000 kr.
Haustið 4 mán.32.000 kr.
Vorið 5 mán.38.000 kr.
Veturinn 9 mán.60.000 kr.
Árið12 mán.72.000 kr.

Unglingar

Iðkendur á aldrinum 13 – 15 ára greiða unglingagjald. Byrjendur sem mæta í sérstakt námskeið fá afslátt af mánaðargjaldinu. Iðkendur sem gera samkomulag fyrir heilt ár geta greitt æfingagjaldið í jöfnum mánaðarlegum greiðslum.

ByrjendanámskeiðAuglýst sérstaklega
Mánuður 1 mán.  9.000 kr.
Sumarið 3 mán.20.000 kr.
Haustið 4 mán.27.000 kr.
Vorið 5 mán.33.000 kr.
Veturinn 9 mán.55.000 kr.
Árið12 mán.60.000 kr.

Börn

Iðkendur á aldrinum 7 – 12 ára æfa í krakkatímunum tvisvar í viku yfir vetrartímann.

Haustið4 mán.27.000 kr.
Vorið5 mán.33.000 kr.
Veturinn9 mán.55.000 kr.

Æfingagalli og vopn

Æfingagalla og vopn geta iðkendur keypt beint af félaginu.

Galli, stærð 120-150 7.000 kr.
Galli, stærð 160-19010.000 kr.
Galli, merktur Kobayashi Dojo12.000 kr.
Jo (ekki til á lager)8.000 kr.
Bokken (ekki til á lager)8.000 kr.

Gráðanir

Verð fyrir kyu (hvítt belti) gráðanir er:

Krakkagráðun 12. – 8. kyuInnifalið
Gráðun 7. – 4. kyu3.000 kr.
Gráðun 3. – 1. kyu5.000 kr.

Verð fyrir dan gráður er aðeins breytilegt eftir kennurum en er um 20.000 Yen fyrir Shodan.

Æfingasalur

Hægt er að leigja salinn fyrir ýmsa þjálfun, hafið samband við stjórn á stjorn@aikido.is

Translate