O-Sensei

Innskráning






Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Nýskrá
Forsíða
Aikido

Aikido er japanskt sjálfsvarnarform sem var þróað á 20. öldinni af Morihei Ueshiba og er nokkuð skylt judo og jiu-jitsu en er þó ólíkt þeim og öllum öðrum sjálfsvarnaríþróttum að því leiti að ekki er um neinar árásartæknir að ræða. Líkt og í judo er mikið um köst og hvers kyns lása en þó aldrei neitt sem byggir á beinum líkamsstyrk. Ólíkt fl estum sjálfsvarnaríþróttum hefur aikido þó ekki verið þróað sem keppnisíþrótt. Mikil áhersla er lögð á andlega uppbyggingu. Eðli aikido er þannig að allir geta æft saman óháð kyni, aldri, styrkleika og þyngdarfl okkum. Í aikido er öll áhersla lögð á að verjast árásum með því að beina krafti andstæðings frá sér í stað þess að reyna að mæta krafti með meiri krafti. Í aikido er áhersla lögð á að æfi ngafélagar vinni saman að því að bæta sig í stað þess að keppa að árangri á kostnað annara.

 

Barnaæfingar

Barnaæfingar fyrir 7-12 ára hefjast aftur mánudaginn 6. september.  Kennt er tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga kl 17:00-18:00.  Skráning á haustönn stendur yfir ( Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ).

Haustönn

Haustönnin hefst mánudaginn 6. september.  Barna (7-12 ára) og fullorðinstímar(13 ára og eldri ) hefjast 6. september.  Unglingatímar (13-18 ára) hefjast 10. september. Fríir prufutímar.  Kynnið ykkur æfingatímana

© 2010 Aikikai Reykjavík
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.